Guðmundur Ingólfsson - Nafnakall flac mp3 download

Title:
Nafnakall
Musician:
Style:
Fusion
Released:
MP3 album size:
1987 mb
FLAC album size:
1571 mb
Other formats:
MIDI ASF MP4 XM MMF ADX VOC
Genre:
Rating:
4.5 ✪
Download links
- 1571 downloads at 17 mb/s
MP3 version RAR archive
- 1987 downloads at 19 mb/s
FLAC version RAR archive
Tracklist Hide Credits
| A1 | Blús Fyrir BirnuWritten-By – Guðmundur Ingólfsson |
4:16 |
| A2 | Some Of These DaysWritten-By – Shelton Brooks |
4:55 |
| A3 | Lover ManWritten-By – Davis*, Sherman*, Ramirez* |
4:33 |
| A4 | Nafnakall IIWritten-By – Guðmundur Ingólfsson, Guðmundur Steingrímsson |
0:30 |
| A5 | Round About MidnightWritten-By – Williams*, Monk* |
4:05 |
| B1 | Nafnakall IWritten-By – Guðmundur Ingólfsson |
4:30 |
| B2 | MáfaskelfirWritten-By – Björn Thoroddsen |
2:25 |
| B3 | Vem Kan Segla Forütan Vind?Written-By [Þjóðlag frá Álandseyjum] – Traditional |
3:10 |
| B4 | GlóreyWritten-By – Guðmundur Ingólfsson, Pálmi Gunnarsson |
6:45 |
| B5 | Þey Þey Og Ró RóWritten-By – Björgvin Guðmundsson |
2:35 |
Companies, etc.
- Recorded At – Studio Nemi
- Printed By – Prisma Hf.
Credits
- Performer – Björn Thoroddsen, Guðmundur Steingrímsson, Pálmi Gunnarsson
Notes
Þá er loksins komin út hljómplata sem Guðmundur Ingólfsson er skrifaður fyrir og mátti það ekki seinna vera, svo lengi hefur hann yljað okkur íslenskum með ljúfum spuna og sterkri sveiflu.Guðmundur Ingólfsson fæddist árið 1939. Sex ára hóf hann píanónám hjá Rögnvaldi Sigurjónssyni og fimmtán ára hélt hann til Kaupmannahafnar í framhaldsnám hjá Axel Arnfjðrð. Þegar hann hélt heim ári seinna var hann ákveðinn í að gerast djassleikari og þeirri köllun hefur hann verið trúr alla tíð, þótt oft hafi hann þurft að leika flest annað til að eiga fyrir salti í grautinn. Guðmundur byrjaði að leika fyrir dansi 12 ára á dansæfingum og eftir að hann kom heim frá Höfn var hann atvinnuhljóðfæraleikari. Hann hefur stjórnað fjölda hljómsveita og leikið með öðrum, ma. hljómsveitum Gunnars Ormslev og Jóns Páls. 1962 lék hann um tíma Í Osló ma. með Dexter Gordon og á árunum 1974-77 bjó hann í Noregi og lék þar með dans-, rokk- og djasssveitum og djammaði ma. með Pearcy Heath og Buddy Rich. Eftir að Guðmundur sneri heim frá Noregi stóð hann fyrir mikilli djassvakningu í Reykjavík og lék að staðaldri djass með félögum sínum í Stúdentakjallaranum, Á næstu grösum og Djúpinu.
Guðmundur hefur leikið á ýmsum hljómplötum og ber þar hæst Jazzvöku (Jazzvakning 002). Auk hennar má nefna tónleikaskífu Megasar: Drög að sjálfsmorði (Iðunn 008) og kvikmyndatónlistina úr Okkar á milli í hita og þunga dagsins (Fálkinn FA 031), þar sem útsetningu hans á Lofsöng Sveinbjarnar Sveinbjörnssonar er að finna. Guðmundur hefur samið marga djassópusa og ma. hluta af tónlistinni í söngleiknum Jazz—inn,
Félagar Guðmundar eru allir vel þekktir, en reyndastur þeirra allra er trommuleikarinn Guðmundur Steingrímsson, fæddur 1929. Hann byrjaði að leika á dansæfingum í Flensborgarskóla þegar hann var fimmtán ára. Hljómsveitin nefndist Ungir piltar og ári síðar var hún ráðin til að leika í Gúttó og hét þá Kvartett Gunnars Ormslev. Guðmundur lék með KK-sextettinum 1951-62 og eftir það ma. með hljómsveitum Hauks Morthens og Ragnars Bjarnasonar. Með Hauki lék hann ma. á Heimsmóti æskunnar í Helsinki 1962 svo og í Leningrad. Guðmundur lærði á trommur ma. hjá Svavari Gests og Bob Grauso og sjálfur hefur hann kennt á trommur, t.d. var Pétur Östlund nemandi hans í þrjá vetur. Guðmundur er trommuleikari á tveimur fyrstu íslensku djassbreiðskífunum: Samstæðum (JV 001) og Jazzvöku (JV 002). Hann hefur lengstum leikið með nafna sínum Ingólfssyni á reykvískum djassstöðum og hann var einn af stofnendum Jazzvakningar og á sæti í framkvæmdanefnd þess félags. Pálmi Gunnarsson, bassaleikari, fæddist árið 1950. Hann byrjaði að leika á böllum á Vopnafirði þegar hann var níu ára. Þá lék hann á harmóniku, en á rafbassa tók hann að leika fimmtán ára gamall. 1965 flutti hann til Reykjavíkur og lék með hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar á Röðli. Þar ríkti oft hin létta sveifla en þekktari er Pálmi fyrir leik sinn og söng með ýmsum rokksveitum ss. Celsíusi, Póker og Friðryk. Fyrir mörgum árum lærði Pálmi ögn á kontrabassa hjá Jóni Sigurðssyni í Tónlistarskólanum og haustið 1981 tók hann aftur til við þann upprétta og nemur nú við Tónlistarskóla FÍH. Pálmi hefur lengi leikið með Guðmundi Ingólfssyni, bæði í djasssveitum hans og í Sjálfsmorðssveit Megasar. hann hefur leikið og sungið inn á margar hljómplötur, bæði undir eigin nafni og annarra. Yngsti liðsmaður Guðmundar Ingólfssonar er gítarleikarinn Björn Thoroddsen, fæddur 1958. Hann byrjaði að spila á gítarinn tólf ára gamall og lék með ýmsum hljómsveitum ss. Stormsveitinni og Tívolí. Hann fór að djamma með Guðmundunum 1978 og er einn efnilegasti djassleikari sem við höfum eignast hin síðari ár. 1981 hélt hann til Kaliforníu þar sem hann nam við Guitar Institute of Tecnology í Hollywood og árangurinn lét ekki á sér standa eins og glöggt má heyra á þessari skífu.
— Vernharður Linnet
Related Guðmundur Ingólfsson - Nafnakall mp3 / flac albums: